Flutningur verkefna til sýslumannsembættanna

38. fundur
Miðvikudaginn 17. nóvember 1993, kl. 15:42:17 (1516)

[15:42]
     Jón Kristjánsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hér hefur komið til umræðu skýrsla nefndar um flutningu ríkisstofnana. Það vildi svo til að það var rædd í gær fyrirspurn varðandi þessa skýrslu og forsrh. orðaði það svo að skýrslunni yrði fylgt eftir í formi þáltill. Það getur vel verið að forsrh. hafi átt við það að einstakir nefndarmenn ættu að flytja þáltill. um efni skýrslunnar. Ég vil benda hv. 5. þm. Norðurl. e. á þetta, hann hefur sennilega orðið of seinn að flytja tillögu um þetta efni. En sannleikurinn er auðvitað sá að svör forsrh. í gær voru þess eðlis að það er mjög lítil bjartsýni um að það eigi að fylgja þessari skýrslu eftir á nokkurn hátt þannig að þetta er hin þarfasta tillaga.