Flutningur verkefna til sýslumannsembættanna

38. fundur
Miðvikudaginn 17. nóvember 1993, kl. 16:03:41 (1530)

[16:03]
     Jóhann Ársælsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Það hefur nú komið í ljós að hv. formaður Alþfl., hæstv. utanrrh., er annaðhvort heyrnarlítill eða þá kýs að heyra ekki mjög vel í hv. 5. þm. Austurl. þegar hann kemur sínum skoðunum á framfæri. En þessi umræða hefur auðvitað sannfært mig um það að stjórnarflokkarnir róa hvor í sína áttina og það mjög harkalega í þessu máli. Og það hlýtur að verða mjög fróðlegt að sjá með hvaða hætti hv. Alþingi afgreiðir tillögurnar í fjárlagafrv. sem hæstv. dómsmrh. ber ábyrgð á.