Skýrsla um sjúkrahúsmál

39. fundur
Fimmtudaginn 18. nóvember 1993, kl. 10:57:49 (1545)

     Forseti (Kristín Einarsdóttir) :
    Einn hv. þm. hefur óskað eftir því að ræða hér undir þessum lið um annað mál, en samkvæmt 50. gr. þingskapa er ekki hægt að ræða um störf þingsins nema í upphafi fundar og þá í 20 mínútur í senn. Hv. þm. hefur því miður ekki möguleika á að gera athugasemdir við störf þingsins samkvæmt þessari málsgrein.