[11:52]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
Virðulegur forseti. Ég vil fyrst geta þess að hér er um tvö aðskilin mál að ræða. Annars vegar er kvörtun sem berst umboðsmanni og umboðsmaður skrifar til fjmrn. um tollskýrslur og töku á fjármunum fyrir tollskýrslublöð. Það mál var til umræðu vegna ummæla skrifstofustjóra ráðuneytisins. Hitt málið sem ég hef verið að minnast á er reglugerð um aukatekjur ríkissjóðs sem síðan var breytt í lög um aukatekjur ríkissjóðs. Ég man ekki eftir því að menn hafi krafist endurgreiðslu vegna tollskýrslueyðublaðanna en það hefur borist nokkur fjöldi beiðna um að fá endurgreiðslur vegna þjónustugjaldanna sem byggðust á reglugerð um aukatekjur ríkissjóðs og þeim hefur undantekningarlaust verið hafnað nema greitt hafi verið með fyrirvara. En ég vænti þess að það verði tekið upp prófmál í því efni því ég held að það sé afar gott fyrir framkvæmdarvaldið og fyrir fjmrn. og Alþingi að átta sig á því hvar mörkin liggja í þessum efnum.
Loks um lögfræðiálit mitt um það hvað sé úrskurður og hvað sé álit þá vil ég bara segja það í lokin að ég get varla kallað þetta lögfræðiálit því ég tek ekki krónu fyrir það.