Landbúnaðarþáttur GATT-samningsins

39. fundur
Fimmtudaginn 18. nóvember 1993, kl. 15:51:36 (1597)

[15:51]
     Jón Helgason (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég verð að láta í ljós vonbrigði mín yfir því að hv. formaður landbn. hafi tekið góð og gild þau svör að ekki væri hægt að svara bréfi sem hann skrifaði fyrir hönd landbn. fyrr en búið væri að ganga frá GATT-tilboði en jafnframt að fá þá ekki að vita, eða a.m.k. ekki landbn. í heild, um hvað væri verið að fjalla svo landbn. gæti fylgst með því máli, svo sjálfsagður hlutur sem það er. Og ég verð því miður að ítreka vonbrigði mín með þessa yfirlýsingu hv. formanns landbn.