Landbúnaðarþáttur GATT-samningsins

39. fundur
Fimmtudaginn 18. nóvember 1993, kl. 15:52:52 (1598)

[15:52]
     Egill Jónsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er auðheyrt á svörum eða viðbrögðum hv. 2. þm. Suðurl. að hann hefur ekki kynnt sér efni þessa bréfs. Ef svo hefði verið þá hefði hann ekki talað með jafnónákvæmum hætti og hann gerði í svari sínu til mín.