[17:22]
Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
Hæstv. forseti. Ég vil einungis út af þeim ummælum sem hv. þm. hafði hér eftir aðstoðarmanni mínum, Sigurgeiri Þorgeirssyni, leggja áherslu á að það er öllum kunnugt sem hafa fylgst með GATT-umræðunum að yfirdýralæknir hefur fylgt málflutningi okkar Íslendinga mjög hart eftir og komið öllum okkar kröfum til skila og sérstöðu. Og ég veit ekki til þess að nokkur hafi látið í ljós nokkra gagnrýni á hans störf.
Ég vil í öðru lagi segja að mér þykir ekki viðeigandi af hv. þm. að taka eina setningu út úr þeim útskýringum sem ég þykist vita að aðstoðarmaður minn, Sigurgeir Þorgeirsson, hafi gefið varðandi þær takmarkarnir á innflutningi sem við vildum halda vegna sjúkdómavarna. Eins og hv. þm. er kunnugt er þar um gagnkvæmar skyldur að ræða og samningarnir fela það raunar í sér að það eru auknar áherslur lagðar á að slíkar varnir séu ekki tylliástæða eða viðskiptaþröskuldur. Vegna þess hversu skamman tíma ég hef nú, þá mun ég koma nánar að þessu síðar en það vill svo til að Sigurgeir Þorgeirsson hefur kynnt þessi mál víða á bændafundum og annars staðar. Menn þekkja hans málflutning og vita að það er ósæmilegt að taka eina setningu út úr með þeim hætti og í þeim anda sem hv. þm. gerði.