Landbúnaðarþáttur GATT-samningsins

39. fundur
Fimmtudaginn 18. nóvember 1993, kl. 18:42:22 (1640)

[18:42]
     Eggert Haukdal (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Eins og hv. þm. heyrði, þá hef ég héðan úr þessum ræðustól lýst vantrausti á hæstv. utanrrh. Í því fólst ekki að ég lýsti vantrausti á ríkisstjórnina sem heild. Þetta kom hér skýrt fram og skal endurtekið.