Landbúnaðarþáttur GATT-samningsins

39. fundur
Fimmtudaginn 18. nóvember 1993, kl. 19:14:56 (1647)

[19:14]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Herra forseti. Ég hlýt að ítreka það sem ég áður sagði. Ég kann ekki vel við það að mér sé æ ofan í æ brigslað um það að ég sé að reyna að halda upplýsingum leyndum fyrir landbn. þegar því er ekki til að dreifa og skil raunar ekki hvernig á því megi standa að málatilbúnaður skuli hafinn með þessum hætti. Ég þekki raunar engin dæmi þess, veit ekki hver tilgangurinn er en ég ítreka það sem ég áður sagði. Hv. þm. hefur lýst stuðningi við GATT-aðild okkar Íslendinga. Hann hefur nú eftir að ég gerði athugasemdir við hans mál með þögn sinni staðfest að hann hefur ekki efnislegar athugasemdir að gera við það tilboð sem liggur fyrir og er tilefni þeirrar umræðu sem hér er efnt til.