Landbúnaðarþáttur GATT-samningsins

39. fundur
Fimmtudaginn 18. nóvember 1993, kl. 19:19:49 (1650)

[19:19]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Að því leyti sem þetta var andsvar við minni ræðu, þá vil ég taka það fram að ég hef ekki sagt hér að landbrn. hafi leynt okkur eða legið á upplýsingum gangvart okkur. Það sem ég sagði hins vegar var það að það var óþolandi staða að mæta á landbúnaðarnefndarfund á þriðjudagsmorguninn var og lesa þá í dagblöðunum frásögn af því sem hafði verið unnið í þessu máli á síðustu dögum án þess að nefndum þingsins, hvorki landbn. né utanrmn., hafi verið sagt frá því einu einasta orði, hvað þá að þær hafi fengið stafkrók um málið. Það er á þeim grunni sem mín gagnrýni byggist hér.