Landbúnaðarþáttur GATT-samningsins

39. fundur
Fimmtudaginn 18. nóvember 1993, kl. 19:34:53 (1654)

[19:34]
     Egill Jónsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Þessi ummæli mín um forræði málsins komu fram í fyrri hluta umræðunnar og hv. 2. þm. Suðurl. hefði hæglega mátt heyra þau ef hann hefði ekki lokað eyrunum fyrir þeim og kosið að leiða þessa umræðu út á aðrar brautir. En nú þykir mér hins vegar mikilvægt og þakkarvert að hann dregur þessa skoðun mína ekki í efa og gerir mér þá væntanlega ekki upp orð með sama hætti og hann gerði hér í sinni ræðu áðan.