Landbúnaðarþáttur GATT-samningsins

39. fundur
Fimmtudaginn 18. nóvember 1993, kl. 19:56:57 (1661)

[19:56]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Ég vil fyrst segja út af þeim upplýsingafundi sem hér hefur mjög orðið að umræðuefni og það sem

þar var sagt og um hann var skrifað að þá er ég alls ekki rétti maðurinn til að leiða til vitnis um þau efni því ég veit ekkert hvað þar gerðist. Frásagnir eru óljósar og það verður að biðja einhverja aðra menn en mig að útskýra það.
    Um hitt atriðið vil ég segja það sem ég hef raunar sagt annars staðar en hér í þingsölum margsinnis að ég tel ekki aðeins brýnt heldur óhjákvæmilegt að búvörulögum verði breytt í samræmi við þá milliríkjasamninga sem gerðir hafa verið og staða landbrn. treyst. Og ég lít svo á að það þurfi að gerast í þessum mánuði.