Samkeppnisstaða einkarekinna garðplöntustöðva

41. fundur
Mánudaginn 22. nóvember 1993, kl. 17:13:13 (1712)


[17:13]
     Viðskiptaráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
    Virðulegi forseti. Ef forseti gerir ekki athugasemdir við það, þá gæti ég út af fyrir sig í þessari ræðu svarað einnig fsp. á þskj. 234 og mun þá gera það jafnframt sem ég lýsi því yfir að ég mun stuðla að því að ganga eftir því að erindi Félags garðyrkjubænda verði svarað. Hefur forseti á móti því? ( Forseti: Forseti vill taka fyrir 7. mál á dagskrá og þeirri fsp. verði formlega svarað frekar en það sé gert undir þessum dagskrárlið.)