Greiðsluaðlögun

41. fundur
Mánudaginn 22. nóvember 1993, kl. 17:25:36 (1719)


[17:25]
     Fyrirspyrjandi (Sigbjörn Gunnarsson) :
    Hæstv. forseti. Ég þakka svör hæstv. félmrh. og mér er það ánægjuefni að þessi vinna er hafin. Ég tek undir með hæstv. félmrh. að það er mikil nauðsyn að vanda til þessarar vinnu þannig að sem best megi til takast og fagna því að fylgst er með þeim áhrifum sem lagasetning af þessu tagi hefur haft í helstu nágrannalöndum okkar.