Tilkynning um dagskrá

43. fundur
Miðvikudaginn 24. nóvember 1993, kl. 13:30:05 (1797)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Áður en gengið er til dagskrár vill forseti tilkynna að gert hafði verið ráð fyrir að á morgun yrði tekin til umræðu skýrsla Byggðastofnunar, en vegna veikinda hæstv. forsrh. getur sú umræða ekki farið fram á morgun. Hins vegar mun ný dagskrá fyrir morgundaginn verða sýnd áður en þingmenn ganga til þingflokksfunda.