Skattlagning aflaheimilda

44. fundur
Fimmtudaginn 25. nóvember 1993, kl. 16:32:25 (1913)


[16:32]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Þegar hæstv. ráðherra sagði að hann hefði haft í huga annað heldur en hann var að setja fram þá býst ég við að hann hafi haft í huga veiðileyfagjaldið sem hann hefur í huga að taka. ( Utanrrh.: Ég fór einfaldlega rangt með tölur.) En þetta undirstrikar það í mínum huga að það er mjög varasamt að líta á þær upplýsingar sem hér komu fram í þinginu í gær og reikna þau viðskipti öll til verðs. Eitt augnablik hélt ég að hæstv. ráðherra hefði fallið í þá gryfju en hann útskýrði það reyndar í sínu svari að svo var ekki. Mjög mikið af þessu eru tilfærslur milli sama lögaðila þannig að það er mjög vafasamt að draga stórar ályktanir af þeim tölum sem þar komu fram.