Tilkynning um utandagskrárumræðu

45. fundur
Mánudaginn 29. nóvember 1993, kl. 15:01:25 (1951)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Áður en gengið er til dagskrár vill forseti tilkynna að gert er ráð fyrir utandagskrárumræðu að loknum atkvæðagreiðslum. Hún fer fram að beiðni hv. 2. þm. Vestf., Ólafs Þ. Þórðarsonar, um viðhorf ríkisstjórnarinnar til veiða Íslendinga við Svalbarða og í Smugunni sem svo er kölluð.