Tilkynning um utandagskrárumræðu

45. fundur
Mánudaginn 29. nóvember 1993, kl. 15:05:02 (1952)


[15:05]
     Björn Bjarnason (um fundarstjórn) :
    Frú forseti. Þessi mál voru til umræðu á sameiginlegum fundi sjútvn. og utanrmn. í morgun og nefndirnar eiga eftir að fjalla frekar um málið og afla gagna í því. Ég vil því í ljósi þess mælast til þess við hv. 2. þm. Vestf. að hann frestaði beiðni sinni um þessa utandagskrárumræðu þannig að hún færi ekki fram fyrr en eftir a.m.k. viku.