[15:02]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Þetta var athygliverð ræða og ég þakka hv. þm. fyrir hana. Hv. þm. segist hafa barist gegn svokölluðum matarskatti á undanförnum árum. Hann sat í ríkisstjórn í tæplega þrjú ár án þess að hreyfa við þessum matarskatti, en á þeim tíma hækkuðu skattar um meira en 10 milljarða. Svo kemur hann hér í ræðustól og flytur ræðu þegar verið er að tala við 1. umr. um mál þar sem matarskatturinn er færður niður og minntist ekki einu einasta orði á það fyrr en hann var tilneyddur í andsvari og ég þakka honum fyrir það.