[19:57]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Þegar gera þarf breytingar á skattalögum þurfa menn auðvitað að hafa margvísleg sjónarmið í heiðri og eitt þeirra er að hugsa um það, sem kemur mjög rækilega fram hjá Indriða H. Þorlákssyni og ýmsum hv. þm., að gæta þess að það sé farið skattalega rétt að, skynsamlegast út frá skattalegu sjónarmiði. En það eru önnur sjónarmið í lífinu heldur en skattaleg sjónarmið, til að mynda þau að það kann að vera skynsamlegt að færa til skatt í þjóðfélaginu af fyrirtækjum yfir á einstaklinga til að styrkja fyrirtækin í sessi og koma í veg fyrir atvinnuleysi þannig að það eru til fleiri sjónarmið heldur en bara einfaldlega skattaleg sjónarmið. Þetta er eins og þegar menn lesa ritgerð, þá mega menn ekki bara skoða það hvort að séu ritvillur í ritgerðinni. Það geta verið einhver önnur sjónarmið sem koma til greina þegar menn lesa ritgerðina. ( Gripið fram í: Hvað með ferðaþjónustuna?) Þetta á við öll mál, að það eru fleiri en ein hlið á málinu og það var það sem ég var að reyna að segja í mínu svari áðan þegar ég benti á mismunandi röksemdir sem kæmu fram hjá hv. þm. Framsfl. og Alþb.