[21:01]
Guðrún Helgadóttir (andsvar) :
Hæstv. forseti. Það er auðvitað alveg ljóst að samkeppni milli flugs og ferða á landi er næstum vonlaus vegna þess að flug á Íslandi er alveg óguðlega dýrt. Fólk hefur engin efni á að borga 13.000 eða 14.000 kr. fyrir að skreppa til Reykjavíkur austan af landi eða norðan úr landi. ( Gripið fram í: Það kostar 16.000 kr.) Eða 16.000, það er leiðrétt hér. Það segir sig auðvitað sjálft að slík samkeppni er algjörlega vonlaus og við þessu verður auðvitað að bregðast. En ég held að það sem hæstv. samgrh. sagði sé ósköp mikið til hliðar við það sem ég var að tala um áðan. Það sem er svo átakanlegt í öllum þessum aðgerðum ríkisstjórnarinnar er að það er engin heildarsýn yfir samfélagið. Þessi hæstv. ríkisstjórn hefur ekki grun um hvað hún er búin að gera fólki í þessu landi. Hún er búin að rýra kjör fólksins svoleiðis að með ólíkindum er og hún hefur ekki hugmynd um það. Það er mergurinn þess máls sem ég var að reyna að segja. Það er nefnilega ágæt regla að byrja á því að gera sér grein fyrir því hvað maður ætlar að gera við peningana áður en maður fer að eyða þeim.
Og til hæstv. fjmrh. skal ég segja þetta: Ég hef setið einungis tvö ár í fjárln. Alþingis en það er satt að segja skelfileg lífsreynsla og ég hef margsinnis sagt við félaga mína þar að ég væri fús til að hjálpa hæstv. fjmrh. að skera fjárlögin umtalsvert niður og nota það fé sem þar með sparaðist til betri og arðvænlegri og arðbærari hluta.