[21:06]
Jón Kristjánsson :
Virðulegi forseti. Ég hafði ekki hugsað mér að taka þátt í þessari umræðu en ræða hæstv. samgrh. áðan gekk svo fram að mér að ég get ekki orða bundist. Hann leyfir sér úr ræðustól að tala um fortíðarvanda í samgöngumálum. Það er verið að velta þriggja og hálfs milljarðs króna framkvæmdum í vegamálum yfir á framtíðina og það fæst ekki upplýst einu sinni hvenær eða hvort á að borga af þessum lánum og hvenær á að hefja þessar afborganir. Það liggur ekkert fyrir hvort það á að velta því yfir á næstu ár eða borga þetta eftir aldamót eða hvenær það verður. Svo leyfa menn sér að koma hér upp og ásaka fyrrv. ríkisstjórn fyrir framkvæmd samgöngumála. Þetta er alveg ótrúlegt og ekki batnar það þegar farið er að tala um flugið.
Við höfum hér upplýsingar um þá skoðun flugfélaganna að þeir útreikningar á innskatti sem liggja til grundvallar þessari ákvörðun séu kolrangir og ég vildi hvetja hæstv. fjmrh. til þess að láta sína menn taka upp þá útreikninga aftur. Ég veit að það verður gert í efh.- og viðskn. sem fær þetta mál til meðferðar. Og að bera það hér á borð að göng undir Hvalfjörð séu einhver lausn í þessu virðisaukaskattsmáli á flugfargjöld, að göng undir Hvalfjörð muni leysa þetta flug af. Það er mjög skemmtilegt fyrir okkur á Austurlandi að horfa upp á þá framtíð að þurfa að keyra hingað suður í sex, átta, níu eða tíu tíma ( Gripið fram í: Og undir Hvalfjörð.) þegar flugið verður lagt niður, sem er ekkert fjarlægur möguleiki.
Ég hef einnig heyrt þær raddir að það sé enginn möguleiki að bregðast við þessu ef farþegafjöldinn hrynur saman í kjölfarið á þessari skattlagningu með öðrum hætti en að hætta að reka þessar dýru Fokkervélar og selja þær. Ég held að hæstv. samgrh. ætti að fara að taka upp viðræður við Flugleiðir um þetta atriði. Hann mundi vafalaust heyra þessar raddir fljótlega vegna þess að flugið þolir ekki hærri skattlagningu. Þessir farmiðar eru þegar of dýrir og það er náttúrlega alveg út í hött að halda því fram að Apex-miðar, sem eru fáanlegir, og sérstök afsláttarfargjöld leysi þennan vanda.
Þá hefur ferðaþjónustu yfirleitt borið á góma og skattlagningin á hana. Þetta er talin sú atvinnugrein sem er mestur vaxtarbroddur í hérlendis ef rétt er á haldið. Ferðir til Íslands hafa farið mjög hækkandi að undanförnu, þær eru afar dýrar. Það þarf ekkert annað en að tala við markaðsmenn í ferðamálum, sem hafa verið að selja ferðir í Evrópu, til að sannfærast um að þær eru mjög dýrar miðað við aðra ferðakosti. Hvað gera þessir markaðsmenn ef ferðirnar hækka og eru óhagkvæmar miðað við aðrar ferðir? Þeir stytta ferðirnar. Þeir stytta hálfsmánaðarferð ofan í vikuferð, taka fólkið í gegnum Keflavík og það leiðir það af sér að það þarf að fella heila landshluta út úr ferðaáætlunum vegna þess að ferðirnar eru svo dýrar.
Þetta er staðreynd þar sem ég þekki til á Austurlandi. Þetta eru staðreyndir sem hægt er að kynna sér ef menn hafa nokkurn hug á að kynna sér málin yfirleitt.
Ég ætla ekki að taka upp almenna umræðu um skattamál, það hefur verið rakið í dag af þeim ræðumönnum sem hafa talað á undan. Það hefur verið rætt í dag hvort skattlagningin hafi vaxið eða minnkað. Ég tek undir það sem hér hefur komið fram, það er ástæða til þess að kanna það grannt hver skattlagning þessarar ríkisstjórnar er í raun og veru og þá má ekki gleyma hinum svokölluðu þjónustugjöldum sem eru í raun ekkert annað en skattlagning og úir og grúir af um allt fjárlagafrv. nú eins og áður og nemur gríðarlegum fjárhæðum. Svo er náttúrlega góð ábending hæstv. samgrh. um að flugfargjöld muni ekki hækka til fyrirtækja. Það gefur mönnum náttúrlega tóninn um það að einstaklingar eigi að ýta öllum flugfargjöldum sem þeir geta yfir á fyrirtæki sín til þess að fá innskattinn endurgreiddan. Þetta er sannkölluð hringavitleysa, allt þetta frv. sem hér er, og það má undrun sæta að menn skuli kinnroðalaust standa og halda slíkar ræður sem hér hafa verið haldnar í kvöld um þetta mál af hæstv. ráðherra.