Fjáraukalög 1993

49. fundur
Mánudaginn 06. desember 1993, kl. 15:08:00 (2226)

[15:08]
     Kristín Ástgeirsdóttir :
    Virðulegi forseti. Þessi brtt. gengur út á það að lækka liðinn 02-982 um 5,3 millj. Þarna er um það að ræða að hæstv. menntmrh. festi kaup á þremur kvikmyndum í heimildarleysi til notkunar í grunnskólum en þær eiga ekki heima í grunnskólum landsins. Ég segi já.