Fjáraukalög 1993

49. fundur
Mánudaginn 06. desember 1993, kl. 15:17:09 (2229)

[15:17]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Virðulegi forseti. Hér er um að ræða 10 millj. kr. vegna sérstaks viðbótarframlags til kennslu nýbúa. Við afgreiðslu fjárlaga á síðasta þingi lögðum við kvennalistakonur fram tillögu um að 10 millj. kr. væri varið sérstaklega í viðbót vegna kennslu nýbúa. Vegna loforða hæstv. menntmrh. um að skoða málið drógum við þá tillögu til baka og ég fagna því að þessi tillaga skuli vera komin hér inn og greiði henni að sjálfsögðu atkvæði.