Svar við fyrirspurn um kaup á björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna

51. fundur
Þriðjudaginn 07. desember 1993, kl. 13:47:39 (2253)

[13:47]
     Jón Kristjánsson :
    Virðulegi forseti. Ég hjó eftir að hæstv. forseti talaði um það að þær athugasemdir sem hefðu komið fram við þessa umræðu mundu komast til viðkomandi ráðherra. Ég vil þá spyrja með hvaða hætti þær komast þangað. Eiga þeir að nálgast þær með því að lesa þingtíðindi eða mun hæstv. forseti koma þessum athugasemdum áfram til ráðherra sem niðurstöðu af þessari umræðu, samanber það sem fram hefur komið að hæstv. forseti vísar frá sér ábyrgð á þessum svörum?