[15:12]
Björn Bjarnason (andsvar) :
Frú forseti. Eins og fram kom hér í umræðum um þetta litla mál áður var ákvörðun um þennan fund tekin án þess að það væri borið undir formann Þingvallanefndar eða nefndina þannig að hún var tekin af fundarboðanda og þjóðgarðsverði. Og eins og ég sagði ég tel að það hefði verið mjög miður ef einhverjar opinberar reglur hefðu komið í veg fyrir að unnt hefði verið að halda þennan fund.