Uppboðsmarkaður fyrir sjávarafla

51. fundur
Þriðjudaginn 07. desember 1993, kl. 17:27:16 (2293)



[17:27]
     Stefán Guðmundsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég beindi þeirri fyrirspurn til hæstv. sjútvrh. hvort það væri ekki rétt skilið hjá mér að nái þetta frv. fram að ganga þá sé greið leið fyrir erlenda aðila til þess að kaupa veiddan fisk úti á hafi, um borð í veiðiskipum úti á hafi, og þar með komist þessir aðilar yfir ráðstöfunarrétt aflans. Ekkert flókið mál. Já eða nei.