Breyting á búvörulögum

52. fundur
Miðvikudaginn 08. desember 1993, kl. 13:53:00 (2358)


[13:53]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
    Virðulegur forseti. Þetta voru mjög hliðstæð svör og við fengum frá hæstv. ráðherra fyrir þrem vikum síðan nema á endanum var hægt að særa það svar upp úr ráðherranum að það væri mjög brýnt að í þetta yrði gengið strax og að það yrði gengið frá málinu fyrir lok nóvembermánaðar. Ég hlýt nú að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað kom í veg fyrir að hægt væri að gera það? Nú lá fyrir á vordögum skýlaus vilji meiri hluta Alþingis að ganga í málið. Ég spyr hæstv. ráðherra: Stendur þannig á þessu að málið strandi í þingflokki Alþfl. og það sé hæstv. utanrrh., fjandvinur hans, sem þarna sé sá þrándur í götu að málið komist ekki fram?