[17:51]
Sturla Böðvarsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég vil af þessu tilefni taka það fram að ferðamálasamtök landshlutanna hafa fengið þessa fjármuni í ár. Það er aðalatriði málsins. Hins vegar hvort það eru skiptar skoðanir um hvernig eigi að skipta þessum fjármunum innan Ferðamálaráðsins, það verður náttúrlega að leyfa þessu fólki að hafa mismunandi meiningar um þessa hluti. En aðalatriðið er að ferðamálasamtökum landshluta sé tryggt þetta fjármagn. Í mínum huga skiptir það öllu máli en ekki formið.