Fjárlög 1994

53. fundur
Fimmtudaginn 09. desember 1993, kl. 18:00:48 (2441)


[18:00]
     Egill Jónsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Út af þeim orðum sem féllu af vörum hv. 2. þm. Austurl. um þá tillögu sem ég er hér flm. að og með tilliti til þeirrar yfirlýsingar sem hefur komið fram hjá hæstv. heilbrrh., þá er hún ekki í samræmi við þá umræðu sem hefur farið fram í Sjálfstfl. um þessa niðurstöðu til sátta og er þess vegna ófullnægjandi fyrir mig að ganga að með þeim hætti sem hún liggur nú fyrir.