Fjárlög 1994

53. fundur
Fimmtudaginn 09. desember 1993, kl. 19:17:14 (2453)


[19:17]
     Árni M. Mathiesen (andsvar) :
    Herra forseti. Ég sagði ekki að hv. formaður umhvn. hefði sagt að það væri nöldur, ég sagði að það hefði mátt skilja það svo. Ef það var minn misskilningur þá bið ég hv. formann afsökunar, enda hefur formaðurinn gert mjög skilmerkilega grein fyrir því í andsvari hvernig álitið er samansett hvað varðar álit meiri hlutans og minni hlutans.