[21:58]
Árni Johnsen (andsvar) :
Hæstv. forseti. Það ber auðvitað vott um drifkraft í Háskóla Íslands að það sé ætlast til þess að það sé unnið með framsýnum mönnum og ættum við ekki að hafa neitt við það að athuga. En auðvitað verða svona hlutir til með því að menn bera saman bækur og reyna að fylgja þeim fram og að því eru menn að starfa í þessu þjóðfélagi eða a.m.k. eiga að vera til þess að starfa á þann hátt, hvort sem það eru þingmenn eða aðrir og á ekki að vera neitt launungarmál. Það er spurning um að fá samstöðu með hugmyndum, ef það liggja rök að baki og væntingar um árangur, þá á ekki að skipta máli hvort einhver ákveðin nöfn standi þar á bak við heldur einfaldlega hver árangurinn verður.
Ég held að það megi benda á svona sem smádæmi að í Gufudal í Hveragerði er háhitahola sem hefur staðið ónotuð um áratuga skeið. Hún er látin blása þegar erlendir þjóðhöfðingjar koma til Íslands. Hún er ekki notuð til neinnar vinnslu. Við seljum ál á 70 kr. kg úr landi, fullunnið í erlendum vörum, tæknivörum, hvort sem það eru felgur eða fullunnin hátæknivara, hefur verðgildið þrjúhundruðfaldast.
Í Vestmannaeyjum er náttúrugripasafn sem er tilbúin tilraunastöð, sem er vísindalegur grunur. Þar eru gerðar margar tilraunir en ekki á eins skipulegan hátt eins og efni standa til. Ég nefni hér aðeins ónýtta möguleika sem er ástæða til að takast á við.