Fjárlög 1994

54. fundur
Föstudaginn 10. desember 1993, kl. 11:31:20 (2526)


[11:31]
     Hjörleifur Guttormsson :
    Virðulegur forseti. Hér er gerð tillaga um 3 millj. kr. framlag til Orkusjóðs vegna jarðhitaleitar í Austur-Skaftafellssýslu. Ástæðan fyrir því að flutt er sérstök tillaga um þetta svæði er að einmitt þar hafa komið fram undanfarið mjög jákvæðar vísbendingar um að finna megi nýtanlegan jarðhita og síðustu daga hafa þær vonir verið frekar að styrkjast. Með samþykkt tillögunnar skapaðist möguleiki til þess að ljá heimamönnum, bæði þéttbýlisbúum og bændum, lið við að afla jarðhita. Því er þessi tillaga flutt.