Hollustuhættir og heilbrigðiseftirlit

60. fundur
Þriðjudaginn 14. desember 1993, kl. 16:48:03 (2649)


[16:48]
     Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég sé að ég hefði kannski ekki átt að spyrja umhvrh. þessarar spurningar heldur hæstv. heilbr.- og trmrh. vegna þess að þessi stofnun hefur auðvitað heyrt undir hann hingað til og ég tel eðlilegt og sjálfsagt að ráðherrar kynni sér ekki aðeins skoðanir þess fólks sem stýrir stofnunum heldur jafnframt viðhorf þess fólks sem vinnur á tilteknum stofnunum og ætti auðvitað að hafa eitthvað um það að segja með hvaða hætti málum þeirra er hagað. Og kannski getur hæstv. umhvrh. sagt okkur hvort heilbr.- og trmrh. hafi eitthvað kynnt sér þessi mál og hverjar þessar skoðanir séu þá.