Varamaður tekur þingsæti

61. fundur
Miðvikudaginn 15. desember 1993, kl. 13:30:03 (2661)


     Forseti (Kristín Einarsdóttir) :
    Borist hefur svohljóðandi bréf:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Elín R. Líndal hreppstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Páll Pétursson, 1. þm. Norðurl. v.``


    Elín R. Líndal hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.