[15:04]
Kristín Einarsdóttir (andsvar) :
Frú forseti. Fyrst varðandi 67. gr. Ég verð að lýsa því yfir að mér finnst að það ætti þá að fella niður þessa heimild því ef heimildin sem þarna er, þ.e. að birta sem reglugerð reglur Evrópubandalagsins um almannatryggingar, ef ekki má birta neitt sem ekki er kveðið á um í þessum lögum þá skiptir ekki máli, þá þarf ekki að hafa þetta með þessum hætti. Mér þykir óeðlilegt að hafa þetta inni í íslenskum lögum, þannig að ég mun þá hugleiða það að flytja breytingartillögu annaðhvort við þessa umræðu, eftir því hvort ég hef tíma til þess, eða alla vega við þriðju umræðu ef þetta er yfirlýsing formannsins. Ráðherra getur auðvitað birt eðlilegar reglugerðir á grundvelli þessara laga, fyrri setningin heimilar það. Mér finnst því mjög óeðlilegt að hafa þetta atriði þarna inni.
Varðandi lögheimili þá kom það mér mjög á óvart, þ.e. að út úr þessari 15. gr. mætti þá lesa --- það stendur hér: Fæðingarstyrkur skal vera 25.090 kr. á mánuði í sex mánuði við hverja fæðingu til móður sem á lögheimili hér á landi eða í öðru EES-landi. Er þetta rétt skilið? Ég gat ekki skilið annað af hv. formanni nefndarinnar en að ,,lögheimili hér á landi`` þýddi í raun lögheimili á EES-svæðinu. Ég vil fá upplýsingar um það hvort þetta er rétt skilið hjá mér. Ég hélt að hér á landi þýddi bara hér á landi og jafngilti ekki lögheimili í öðru landi. Mér þætti því mjög gott að fá þetta enn þá skýrar. Ég gat ekki skilið annað.