[15:06]
Kristín Einarsdóttir :
Frú forseti. Mér þykir mjög slæmt að geta ekki fengið skýrt svar við því sem ég spyr um hér. Ég spurði hv. formann heilbr.- og trn., hv. þm. Gunnlaug Stefánsson, einfaldra spurninga. Ég hélt, eins og ég sagði í minni fyrri ræðu, að það mætti ekki setja ákvæði með þessum hætti inn í lög, þ.e. að fæðingarstyrk og fæðingarorlof mætti einungis greiða þeim sem ættu lögheimili hér á landi heldur yrði þetta að vera víðtækara. Ég var þó ekki viss og þess vegna spurði ég. Ég gat ekki skilið hv. 5. þm. Austurl. öðruvísi en svo að þar sem stæði í frv. ,,lögheimili hér á landi`` þýddi í raun lögheimili á Evrópsku efnahagssvæði. Ég gat ekki skilið hann öðruvísi. Þetta kom mér mjög á óvart og þess vegna vildi ég spyrja. Mér finnst ekki hægt að ganga til atkvæða um þetta mál, þar sem mér er kunnugt um að umræðu er næstum lokið, án þess að vita hvað í raun felst í þessu. Mér finnst grundvallaratriði, og þá hlýtur það að gilda ekki bara í þessum lögum heldur öðrum, hvað ,,lögheimili hér á landi`` þýðir í raun? Ég gat ekki skilið formanninn öðruvísi en að það þýddi eða jafngilti, eins og hann orðaði það, lögheimili á Evrópsku efnahagssvæði. Þetta finnst mér nauðsynlegt að fá upplýst. Ef ég fæ ekki svar við því hér þá vil ég óska eftir að þessari umræðu verði frestað svo ég geti fengið að kanna málið örlítið nánar.