[22:59]
Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Eitthvað er ég hræddur um að hv. þm. hafi ekki hlustað á orð mín. Það voru ekki mín orð að togarasjómenn væru að fara í verkfall til þess að hafa pólitísk áhrif. Ég benti á þá furðulegu staðreynd að Morgunblaðið hvetti sjómenn til þess að fara í verkfall ekki vegna þess að það bæri þann hag fyrir kjörum þeirra heldur vegna þess, og það segir Morgunblaðið beint út og alveg hreint, að það sé til þess að hafa pólitísk áhrif. Það var það sem ég sagði í minni ræðu.
Ég held að hæstv. sjómaður ætti að segja það við íslenska togarasjómenn að togararnir hafi getað veitt hömlulaust allt í kringum landið síðustu ár og að það sem gerist annars staðar hafi engin áhrif á þá. Sér er nú hver viskan, sér er nú hver spekin. Hvernig hefur þorskkvótinn, sem er dýrmætasti hluti aflaheimildanna, þróast hjá togurunum á síðustu 3--4 árum? Hvað er sá togari með, sem kannski var með 2--3 þúsund tonn fyrir 4 árum, í þorski í dag? Það er ekki hátt alls staðar. Ég skora nú á hv. þm. að kynna sér það og velta því aðeins fyrir sér hvaða áhrif það kunni að hafa haft á kjör sjómanna.
Ég er þingmanninum alveg sammála um að á því sem menn hafa kallað og kalla kvótabrask verður að taka og það tók ég fram rækilega í minni ræðu að þar hefur núv. ríkisstjórn algerlega brugðist.