[16:23]
Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Ég hlýt að svara þessu og benda hæstv. ráðherra á það sem ég hef gert í tvígang að við höfum í höndunum dæmi um að seinagangur hæstv. ráðherra hefur gert það að verkum að óbreyttri, úreltri verðmiðlun er haldið áfram einu ári lengur en þurfti að gera og bændur og mjólkursamlög voru tilbúin að gera. Það liggur hér á borðinu. Það liggur á borði okkar alþingismanna, hæstv. ráðherra.
Í öðru lagi liggur það einnig fyrir, virðulegur forseti, að hæstv. ráðherra hefur ekki enn sett reglugerð sem heimili nýtingu þess fjár sem þó er til til úreldinga á mjólkursamlögum. Hæstv. ráðherra hefur ekki komið hér fram með nein frambærileg rök fyrir því að það hefur ekki gert. Og það vill svo vel til að sá sem hér stendur veit að eftir þessu er beðið.