Prestssetur

63. fundur
Föstudaginn 17. desember 1993, kl. 01:34:36 (2908)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Forseti vill benda á að altítt er að mál séu athuguð á milli 2. og 3. umr. Forseti hefur þegar boðist til að mælast til þess við formann hv. nefndar að kanna þau mál sérstaklega sem hér hafa verið gerð að umtalsefni.
    Ég tel að hv. þm. mættu vel sætta sig við þá leið . . .   ( Gripið fram í: Ég geri það ekki. Ég vil fá að ræða við fjmrh. áður en ég greiði atkvæði um þessa grein.) og er það altítt að sú leið sé farin.