Starfsleyfi fyrir THORP-endurvinnslustöðina

64. fundur
Föstudaginn 17. desember 1993, kl. 02:00:14 (2911)


[02:00]
     Frsm. utanrmn. (Björn Bjarnason) :
    Herra forseti. Utanrmn. kom saman á fundi fyrr í kvöld og fjallaði um till. til þál. um viðbrögð vegna starfsleyfis fyrir THORP-endurvinnslustöðina í Sellafield sem flutt var af umhvn.
    Nefndin fjallaði um tillöguna og fékk á sinn fund til viðræðna um hana Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra, Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóra í umhverfisráðuneytinu, og Jón Gunnar Ottósson, skrifstofustjóra í sama ráðuneyti.
    Nefndin vekur athygli á nauðsyn þess að stuðlað sé að nánu samstarfi við aðrar þjóðir þegar mótmælt er við Breta útgáfu starfsleyfis fyrir THORP-endurvinnslustöðina í Sellafield. Þá leggur nefndin áherslu á að nýtt séu öll ákvæði Parísarsamningsins um varnir gegn mengun sjávar frá landstöðvum í því skyni að bresk stjórnvöld falli frá áformum sínum. Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt með breytingu, sem flutt er tillaga um á sérstöku þingskjali, og hvetur til að tillagan, þannig breytt, verði kynnt sendiherra Breta á Íslandi þegar hann verður kallaður á fund starfandi utanríkisráðherra eins og fyrirhugað er og verði fylgt eftir með þeim ráðum sem tiltæk eru.
    Undir álitið rita allir nefndarmenn.
    Herra forseti. Ég vil, með leyfi forseta, lesa tillögugreinina eins og hún orðast eftir meðferð í utanrmn. Hún er svohljóðandi:
    ,,Alþingi ályktar að mótmæla harðlega ákvörðun breskra stjórnvalda 15. desember 1993 að veita THORP-endurvinnslustöðinni fyrir geislavirkan kjarnorkuúrgang starfsleyfi og ganga þannig gegn samþykkt aðildarríkja Parísarsamningsins um varnir gegn mengun sjávar frá landstöðvum sem gerð var í Berlín í júní 1993.
    Alþingi væntir þess að ríkisstjórnin grípi til skjótra viðbragða í tilefni þessarar ákvörðunar sem ógnar lífshagsmunum íslensku þjóðarinnar vegna áhrifa á lífríki hafsins og nýtingu auðlinda þess.``