[23:19]
Jón Helgason (andsvar) :
Hæstv. forseti. Ég sagði það að ég teldi eðlilegt að það væru samstarfsnefndir á milli ráðuneyta, en þessi hefur þá óvanalegu náttúru að hún tekur fram fyrir hendur á ráðherra þannig að hann má ekki beita sínu valdi, sem hæstv. landbrh. segir samt að sé ótvírætt, nema það verði samkomulag í nefndinni.
En ég fagna því ef það er rétt sem hæstv. ráðherra segir að þarna hafi landbrn. forræði og þá skil ég ekki af hverju á ekki að segja það alveg afdráttarlaust í lögunum. Ég vil spyrja hæstv. viðskrh., hann var hér rétt áðan í gættinni, og biðja hann að svara því hvort hann skilji það sama, að forræði landbrh. á þessum málum sé algert og þær vífilengjur sem hér eru séu aðeins formsatriði en þær tel ég til niðurlægingar fyrir landbrh.