Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1994

69. fundur
Laugardaginn 18. desember 1993, kl. 14:59:14 (3073)


[14:59]
     Finnur Ingólfsson (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Það var búið að boða þennan fund í heilbr.- og trn. en formaður hv. nefndar er bundinn á öðrum fundi. Fundurinn getur þess vegna ekki hafist eftir því sem ég veit best alveg næstu mínúturnar. Ég segi fyrir mitt leyti að ég er tilbúinn til að hlusta á framsögumann minni hlutans flytja sitt mál en það er útilokað að hefja umræðurnar að mínu viti fyrr en annaðhvort verði fundi í heilbr.- og trn. frestað eða þessari umræðu frestað. Það er ekki hægt fyrir þá þingmenn sem ætla að taka þátt í umræðunni hér á eftir að vera bundnir á fundi í nefnd.