Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1994

69. fundur
Laugardaginn 18. desember 1993, kl. 16:23:38 (3088)


[16:23]
     Umhverfisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hv. þm. Jón Helgason hefur beint til mín spurningu um hvort mér sé kunnugt um að nýtt hafi verið heimild sem gefin var í lánsfjárlögum sem samþykkt var á síðasta ári um að heimilt sé að fella niður grenja- og minkaleitir á svæðum. Ég svara alveg hreinskilnislega: Ég er ekki viss um það. Ég get gengið úr skugga um það. Ég held að þessi heimild hafi ekki verið notuð en mér er einfaldlega ekki alveg kunnugt um það.
    Hina spurninguna skildi ég svo hvort það væri fyrirhugað í eitt skipti fyrir öll, þar með um alla framtíð, að taka þarna ákvörðun en það er ekki svo.