[17:30]
Guðmundur Bjarnason (um fundarstjórn) :
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þessi svör. Þau eru skýr og greinargóð og vissulega er það rétt hjá hæstv. forseta að oft hefur verið hagað svo málum að það er breytt röð og ekki farið eftir númeraröðinni á dagskránni. En ef meiningin er að ljúka störfum nú í kvöld eða nótt þá finnst mér ekki vera nein rök fyrir því að vera að hringla svona aftur og fram með mál sem eru í umræðunni heldur bara taka þau fyrir hvert af öðru ef þetta eru mál sem á að afgreiða nú fyrir hléið.
Það var þess vegna sem ég kvaddi mér hljóðs, hæstv. forseti, en ég heyri skýringar forseta og út af fyrir sig fagna því að hann hefur lýst því yfir að það sé þá meiningin að taka þessa fjárlagaumræðu fyrir næst og klára hana þannig að hún sé þá alla vega frá og við getum þá að því loknu séð hvernig mál standa og hvort mögulegt er að halda áfram með afgreiðslu hinna málanna sem ég hefði þó talið rétt að taka fyrir fyrst og láta á reyna og ljúka þeirri umræðu og afgreiðslu.