Fjárlög 1994

70. fundur
Laugardaginn 18. desember 1993, kl. 18:16:04 (3097)


[18:16]
     Frsm. minni hluta fjárln. (Margrét Frímannsdóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frhnál. á þskj. 462 um frv. til fjárlaga fyrir árið 1994 frá minni hluta fjárln.
    Ég vil í upphafi máls míns þakka starfsfólki fjárln. fyrir gott samstarf í gegnum alla vinnu fjárln., einnig þeim fulltrúum fjmrn. og Ríkisendurskoðunar sem unnið hafa með og fyrir nefndina í heild sinni og einstaka nefndarmenn.
    Fjárln. hefur haft frv. til fjárlaga fyrir árið 1994 til meðferðar eftir 2. umr. Farið

hefur fram hefðbundin athugun á tekjuhlið, B-hluta stofnunum og 6. gr. frv. Þá hafa verið afgreiddar tillögur sem meiri hluti fjárln. lét bíða 3. umr.
    Nefndin hafði alls ekki þann tíma sem til hefði þurft til þess að fara rækilega yfir tekjugrein frv. Frv. til breytinga á skattalögum til samræmis við tekjugrein fjárlagafrv. komu seint fram. Síðustu afgreiðslur ríkisstjórnar í þessum málum bárust nefndinni aðeins stuttu fyrir lokaafgreiðslu hennar á fjárlagafrv.
    Samkvæmt 25. gr. þingskapa vísaði fjárln. tekjugreininni til umsagnar hjá efh.- og viðskn. Í umsögnum 1. og 2. minni hluta nefndarinnar kemur fram hörð gagnrýni á þann skamma tíma sem nefndin hafði til að fjalla um tekjuhliðina og hversu seint og illa upplýsingar bárust frá ríkisstjórninni. Minni hluti fjárln. tekur undir þessi orð 1. og 2. minni hluta efh.- og viðskn.
    Í frv. er gert ráð fyrir verulegum breytingum á skattkerfinu. Að mati minni hlutans gafst fjárln. ekki tími til að fara yfir þær breytingar með þeim hætti sem nauðsynlegt er vegna þess að ekki liggja fyrir fullnægjandi upplýsingar eða úttekt á áhrifum þessara breytinga.
    Veigamesta breytingin er sú ákvörðun ríkisstjórnar að lækka virðisaukaskatt á matvælum í 14%. Verði þessi breyting samþykkt við afgreiðslu fjárlaga telur minni hluti fjárln. að verulega þurfi að auka allt eftirlit með framkvæmd virðisaukaskattslaganna ef breytingin á að ná því markmiði sem til er ætlast, þ.e. lækkað verð á matvöru. Minni hlutinn átelur hversu illa hefur verið unnið að undirbúningi að þessum skattkerfisbreytingum af hálfu ríkisstjórnarinnar og dregur stórlega í efa að hægt sé að framkvæma þær 1. janúar verði þær samþykktar við afgreiðslu fjárlagafrv. Lækkun matarskatts felur samkvæmt upplýsingum fjmrn. í sér tekjutap ríkissjóðs upp á 2,6 milljarða kr. Til þess að mæta þessu tekjutapi var m.a. gert ráð fyrir að komið yrði á fjármagnstekjuskatti auk annarra aðgerða. Ríkisstjórnin hikstaði hins vegar enn einu sinni á þeirri framkvæmd. Minni hluti fjárln. dregur í efa að þær aðgerðir sem ríkisstjórnin boðar nú til að mæta tekjutapi til ríkissjóðs vegna áformaðrar lækkunar á virðisaukaskatti á matvælum skili þeim tekjum sem til er ætlast.
    Önnur veigamikil breyting á skattkerfinu er sú að nú á að festa í sessi skattlagningu á einstaklinga í stað aðstöðugjaldsins sem fellt var niður á fyrirtækjum um áramótin 1992/1993. Við niðurfellingu aðstöðugjaldsins var tekjuskattur einstaklinga hækkaður um 1,5%. Skattahækkun þessi átti að vera tímabundið til að mæta tekjutapi sveitarfélaga vegna aðstöðugjaldsins. Nú er gert ráð fyrir að færa 1,5% úr tekjuskatti yfir í útsvör sveitarfélaganna og bæta þar 0,2% við þannig að hámarksútsvarsálagning fer úr 7,5% í 9,2%. Tekjuskattinn á síðan að hækka um 0,35%. Samanlögð skattprósenta einstaklinga á næsta ári getur því orðið allt að 41,9% en var 39,85%. En ríkisstjórnin ætlar ekki aðeins að ákveða hámarksútsvarsprósentu fyrir sveitarfélögin, heldur setur skilyrði um lágmarksálagningu. Sjálfsákvörðunarréttur sveitarfélaga er þannig stórlega skertur frá því sem nú er.
    Í upphaflegum tillögum ríkisstjórnarinnar var gert ráð fyrir að um áramót yrði 14% virðisaukaskattur lagður á ferðaþjónustu, þar með talið almenningssamgöngur. Þegar þetta er skrifað nokkrum tímum fyrir áætlaða afgreiðslu frv. til fjárlaga er áformað að draga þessa skattlagningu jafnvel til baka að hluta, þ.e. allt nema skattlagningu á gistingu. Minni hluti fjárln. fagnar þeirri breytingu en telur að fella hefði átt niður alla skattlagningu á ferðaþjónustuna.
    Reiknað er með að gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu hafi aukist um 2.500 millj. kr. á síðasta ári og beinar tekjur ríkissjóðs um a.m.k. 500 millj. kr. ferðaþjónustan er vaxandi atvinnugrein og það er engin skynsemi að draga úr vaxtarmöguleikum greinarinnar með stóraukinni skattlagningu í því atvinnuástandi sem nú ríkir.
    Við 1. og 2. umr. fjárl. bentu fulltrúar minni hluta fjárln. á þær stórfelldu skattahækkanir sem orðið hafa í tíð þessarar ríkisstjórnar og þær stóru hallatölur sem eru í ríkisbúskapnum ár hvert. Í frv. til fjárlaga fyrir árið 1994 segir á bls. 245:
    ,,Lykilatriði í efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar er að fylgt verði trúverðugri stefnu í ríkisfjármálum þar sem markvisst verði dregið úr halla ríkissjóðs á næstu árum án þess

að hækka skatta.``
    Niðurstaðan er hins vegar sú að aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru í litlu samræmi við yfirlýsingar eða loforð. Barnabætur hafa verið lækkaðar. Ýmiss konar þjónustugjöld hafa einnig verið hækkuð verulega og aukið útgjöld heimilanna frá því sem áður var, tekjuskattar verða hækkaðir og skattar færðir af fyrirtækjum á einstaklinga. Persónuafsláttur skertur og bifreiðagjöld hækkuð.
    Nú boða tillögur ríkisstjórnarinnar að tekjuskattur einstaklinga hækki um 0,35% sem þýðir 600 millj. kr. skattahækkun. Bifreiðagjald hækkar um 35% eða 450 millj. kr. og ef sveitarfélögin nýta sér hámarksálagningu útsvars, þá þýðir það 200 millj. kr. viðbótarskattlagningu á almenning í landinu. Ofan á þetta er síðan bætt auknum þjónustugjöldum, aukinni þátttöku í lyfjakostnaði og hækkun á öðrum sértekjum stofnana ríkisins.
    Þá hafa orðið verulegar breytingar á ýmsum liðum í staðgreiðslunni, flestar til skattahækkunar. Ef persónuafsláttur ársins 1988 er framreiknaður miðað við fast verðlag hefði hann átt að nema 299.441 kr. árið 1993 en nam 286.935 kr. Skattleysismörk ættu að vera 850.685 kr. en eru 689.724 kr. og lækkuðu frá árinu 1992 um 32 þús. kr.
    Húsnæðisbætur ættu að nema 74.128 kr. á árinu 1993, en námu 62.619 kr. Ef aðeins er tekin breytingin frá árinu 1990 þá ætti persónuafsláttur að vera 297.366 kr. en er 286.935 kr. Vaxtabætur ættu að vera 212.880 kr. en eru 203.310 kr. Húsnæðisbætur ættu að vera 65.332 kr. en eru 62.619 kr. og skattleysismörk ættu að vera 747.339 kr. en eru 689.724 kr.
    Ofan á allt þetta er ríkissjóður rekinn með gífurlegum halla og stefnir nú í stærri hallatölur en nokkurn tíma hafa sést.
    Þjóðhagsstofnun hefur nýlega kynnt nýjar horfur í þjóðarbúskapnum. Þar er um að ræða örlítið betri útkomu á þessu ári en spáð hafði verið. Útflutningtekjur munu aukast um 3,7% í stað 2%. Viðskiptahalli verður nokkru minni en áætlað var eða um 3 milljarðar kr. í stað 5,5 milljarða kr. Þetta breytir þó litlu um stöðuna í heild sinni. Horfur á næsta ári breytast lítið þrátt fyrir bata þessa árs. Áfram er gert ráð fyrir að hreinar erlendar skuldir verði um 60% af landsframleiðslu á næsta ári eða um 175% af útflutningstekjum. Þar er því ekki um bata að ræða. Hagvöxtur hefur aukist en erfitt verður að viðhalda þeirri aukningu ef hlutfall fjárfestingar af landsframleiðslu hækkar ekki verulega. Hlutfallið er nú í sögulegu lágmarki 15,5%. Til þess að ná meðaltali OECD-landanna þyrfti heildarfjárfesting að aukast um rúm 5% eða 20 milljarða króna umfram það sem nú er.
    Með áliti þessu eru birtar töflur úr sérprenti ríkisskattstjóra.
    Við atkvæðagreiðslu við 2. umr. um fjárlagafrv. dró meiri hlutinn til baka tillögur sínar um 180 millj. kr. lækkun útgjalda til sjúkratrygginga. Nú hefur komið í ljós við undirbúning 3. umr. að þetta var gert vegna þess að skáka þurfti til fjárveitingum innan heilbrrn. þar sem fallið hafði verið frá innheimtu gjalds af svokölluðum heilsukortum upp á 400 millj. kr. Breytingar þær sem nú eru boðaðar á útgjöldum sjúkratrygginganna eru ekki trúverðugar þegar litið er á málið í heild. Minni hluti fjárln. hefur farið yfir þessar breytingar og munu aðrir fulltrúar minni hlutans gera grein fyrir þessum tillögum hér á eftir. Og tillögurnar eru, virðulegi forseti, alveg með endemum vitlausar svo að ekki verði meira sagt.
    Við 2. umr. um fjárlagafrv. kom einnig fram að umfjöllun um stóru sjúkrahúsin þrjú í Reykjavík, Ríkisspítala, Borgarspítala og St. Jósefsspítalann á Landakoti, biðu til 3. umr. Var það álit okkar sem skipuðum minni hlutann að sú frestun væri til þess að geta fjallað ítarlega um málefni þessara stofnana og hvernig tekið skyldi á þeim rekstrarvanda sem vissulega blasir þar við. Nú er hins vegar ljóst að sú umfjöllun hefur ekki verið ítarleg, a.m.k ekki með þátttöku minni hlutans. Hins vegar hefur verið tilkynnt í fjárln. sú ákvörðun ríkisstjórnar og meiri hluta nefndarinnar að engar lagfæringar yrðu gerðar á þeim tillögum sem er að finna í fjárlagafrv. Þó er í tillögum meiri hlutans í nokkrum tilvikum dregið úr fjárveitingu til Ríkisspítala. Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir að lækka fjárveitingar til mannvirkjagerðar á Landspítalalóð, svokallaðrar K-byggingar, um 30 millj. kr. Í öðru lagi er gert ráð fyrir að lækka viðhaldslið sjúkrahússins sem verður þó að teljast í algjöru

lágmarki um 5 millj. kr. og í þriðja lagi er gert ráð fyrir að fyrirhugaður sparnaður í rekstri áfengisdeildar sjúkrahússins og hækkunar sértekna vegna meðferðargjalda á áfengisdeildum, en sá sparnaður átti að nema um 20 millj. kr., verði nú fluttur til annarra rekstrarþátta sjúkrahússins. Ekki er þó séð á tillögum meiri hlutans hvernig taka eigi á þeim þætti sem varðar sértekjumálið. Á að innheimta sértekjur vegna annarra rekstrarþátta á spítalanum og fella þá niður innheimtu meðferðargjaldsins eða hvaða aðrar hugmyndir er verið að leggja hér til?
    Forsvarsmenn allra þessara þriggja stóru spítala sem komið hafa til viðtals við fjárln. hafa dregið mjög í efa að skipulagsbreytingar þær sem reynt hefur verið að knýja fram á undanförnum missirum hafi leitt til raunverulegs sparnaðar í rekstri stofnananna.
    Ljóst er að umrót hefur fylgt þessum breytingum og í skýrslu sem Ríkisendurskoðun tók saman að beiðni fyrrv. hæstv. heilbrrh. kemur fram að heildarsparnaður hafi numið um 500 millj. kr. á árinu 1992. Meginhlutinn af þeim sparnaði virðist þó hafa náðst í rekstri Ríkisspítalanna en þar voru þó ekki gerðar neinar grundvallarskipulagsbreytingar varðandi verkefnatilfærslu eða sameiningu stofnana. Þær tilfærslur áttu sér fyrst og fremst stað á verkefnum milli Landakots og Borgarspítalans og þar er ekki að sjá að sparnaður hafi orðið umtalsverður.
    Í nýútkominni skýrslu landlæknis um afköst, kostnað og biðlista í heilbrigðisþjónustunni kemur fram það álit hans að þessar svokölluðu hagræðingar og rekstrarbreytingar kunni að hafa leitt til meiri breytinga á rekstri sjúkrahúsanna en mönnum hafi í upphafi verið ljóst. Nú séu að koma betur í ljós áhrifin sem af þessu hljótast þegar til lengri tíma er litið. Þar er m.a. bent á að biðlistar virðast frekar hafa lengst frá árinu 1991, mikið álag og vinnuhraði sé á sjúkrahúsunum og hafi aukist mjög á undanförnum missirum. Megi jafnvel rekja til þess nokkur slysatilvik, beint eða óbeint. Landlæknir varar við áframhaldandi róttækum breytingum á starfsemi Landakotsspítala og telur að vel hafi gefist að reka hann sem sjúkrahús fyrir göngu- og dagdeildaraðgerðir sem hægt sé að gera á sjúklingum sem teknir eru inn á stofuna af biðlista þar sem sjúkrahúsið er ekki lengur bráðavaktasjúkrahús. Það mundi geta skapað mikil vandræði og erfiðleika á öðrum sjúkrahúsum ef þessari þjónustu á Landakoti yrði hætt eða dregið úr henni.
    Í upplýsingum frá fulltrúum St. Jósefsspítala á Landakoti kemur fram að útgjöld hafi lækkað um 340 millj. kr. milli áranna 1991 og 1993. Munar þar mestu um að Landakot var lagt niður sem bráðaþjónustusjúkrahús og verkefni flutt að mestu til Borgarspítalans. Með þeim verkefnaflutningi voru fjárveitingar til Borgarspítala hækkaðar um rúmar 200 millj. kr. Nú er komið í ljós að fjárvöntun á Landakotsspítala fyrir árið 1992 var um 100 millj. kr. sem búið er að bæta með fjáraukalögum á þessu ári og verður þá ekki sýnt að sparnaðurinn af þessum tilfærslum hafi orðið nokkur. Þar að auki má svo nefna það að í upplýsingum frá Borgarspítalanum blasir við að rekstrarhalli í ár muni verða um 120 millj. kr. Hér sýnist því að í raun hafi orðið um útgjaldaauka að ræða en ekki sparnað.
    Og enn er höggvið að rekstri St. Jósefsspítalans á Landakoti. Nú er gert ráð fyrir að lækka fjárveitingar til hans um 150 millj. kr. á næsta ári. Verulegur hluti þeirrar upphæðar mun vera vegna hugmynda um að flytja þjónustu barnadeildarinnar á Borgarspítala eða Landspítala. Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um það hvort sjúkrahúsin muni taka við þjónustunni og engar fjárveitingar eru veittar til þeirra sjúkrahúsa til þess að taka við verkefnum ef þeim er ætlað að veita þessa þjónustu. Forsvarsmenn Landakots hafa ekki heldur fengið neinar upplýsingar eða hugmyndir um það frá heilbrrn. eða hæstv. heilbrrh. hvernig á að reka sjúkrahúsið áfram miðað við svo mikið skert fjárframlög. Í upplýsingum frá fulltrúum Borgarspítalans kemur fram að í viðbót við áðurnefndan rekstrarhalla, sem blasir við á þessu ári að upphæð 120 millj. kr., sé fjárvöntun í fjárlagafrv. fyrir næsta ár a.m.k. 180 millj. kr. þó aðeins sé gert ráð fyrir að halda óbreyttum rekstri. Það er því ljóst að fjárvöntun til þessarar stofnunar miðað við óbreytt rekstrarumfang er um 300 millj. kr. á þessum tveimur árum.
    Í ítarlegri greinargerð sem fulltrúar Ríkisspítala lögðu fyrir fjárln. kemur fram að lækkaðar fjárveitingar og niðurskurður á fjárlögum 1991--1992 til þessara sjúkrahúsa muni

nema um 500 millj. kr. Er það í samræmi við upplýsingar sem fram komu í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Eigi að halda óbreyttum rekstri á Ríkisspítölum á næsta ári telja forsvarsmenn stofnunarinnar að vanti u.þ.b. 320 millj. til að halda óbreyttu rekstrarumfangi. Stjórnendur Ríkisspítalanna telja lágmark að þeim verði gert kleift að halda uppi sambærilegri starfsemi á árinu 1994 og á yfirstandandi ári. Stjórnendur telja að með samstilltu átaki starfsfólks hafði náðst sá árangur að halda starfsemi Ríkisspítalanna innan ramma fjárlaga sl. tvö ár. Það hafi verið gert með mikilli hagræðingu og nokkrum samdrætti í þjónustu, þ.e. lokunum deilda og með því að fresta verkefnum og kaupum á nauðsynlegum tækjabúnaði. Þess var því vænst að Ríkisspítalar fengju að njóta þessa árangurs sem þegar hefur náðst þannig að ekki sannaðist sú skoðun, sem víða hefur heyrst, að ekki borgi sig að spara í rekstri ríkisstofnana því það leiði aðeins til þess að krafist verði enn meiri sparnaðar.
    Í tillögum stjórnenda sjúkrahússins var auk þess beðið um nokkur nýmæli, m.a. var talið nauðsynlegt að fjölga sérfræðingum kvennadeildar og var vísað í því sambandi til skrifa landlæknis þess efnis að vegna fárra lækna á kvennadeild sé öryggi sængurkvenna oft á tíðum ábótavant.
    Þá er einnig lögð mikil áhersla á það af hálfu Ríkisspítalanna að fá viðbótarfjárveitingu til að efla og styrkja vísinda- og rannsóknastarfsemi stofnunarinnar. Var það talið í samræmi við þá vísindastefnu sem ríkisstjórnin hefur boðað. Þetta var talið nauðsynlegt til að tryggja stöðu Landspítalans sem háskólasjúkrahúss þannig að hann standi jafn vel að vígi og sambærilegar erlendar stofnanir. Undir þetta sjónarmið vill minni hluti fjárln. taka.
    Enn er haldið við þá ákvörðun sem fram kemur í fjárlagafrv. að innheimta sérstök meðferðargjöld af sjúklingum vegna áfengismeðferðar á sjúkrastofnunum. Þó er Ríkisspítölum gefið val í þessum efnum. Er þessi gjaldtaka lögð til þrátt fyrir ítrekuð og ákveðin mótmæli Geðlæknafélags Íslands og Geðverndarfélagsins. Í áskorunum þessara aðila til alþingismanna kemur m.a. fram að talið er að farið sé inn á mjög varhugaverða braut sem leitt geti til þess að sjúklingar leiti ekki meðferðar fyrr en þeir eru komnir með alvarlega fylgikvilla. Bent er á að flestir áfengissjúklingar séu haldnir öðrum geðsjúkdómum og/eða líkamlegum sjúkdómum þegar þeir leita meðferðar á sjúkrahúsum og meðferðarstofnunum og verður áfengismeðferðin þá ekki aðskilin frá annarri læknismeðferð. Innheimta meðferðargjalda er talin sýna skilningsleysi á eðli sjúkleika þeirra sem til geðdeilda leita og er þessari aðför að grundvallaratriðum velferðarkerfisins, þ.e. jafnrétti sjúklinga til að fá bestu fáanlega meðferð án tillits til kynferðis, aldurs, efnahags eða sjúkdóms, mótmælt harðlega.
    Við 2. umr. um fjárlagafrv. kom fram hjá menntmrh. sú fullyrðing að engin ríkisstjórn hefði gert meira á sviði vísinda og rannsókna en sú sem nú situr. Samkvæmt upplýsingum sem fjárln. hafa borist frá Rannsóknaráði ríkisins er þetta alröng fullyrðing eins og sjá má á meðfylgjandi fylgiskjölum. Þar kemur fram að allar stofnanir sem fást við vísinda- og rannsóknastörf á vegum opinberra aðila hafa fengið minni fjárveitingar seinustu ár samanborið við árin 1987--1991 og umsvif þessara stofnana hafa þar með dregist saman. Samanburður við fjárveitingar fyrir árið 1993 er ekki marktækur því að þar er gert ráð fyrir 300 millj. kr. fjárveitingu sem skilyrt var og bundin við 20% af söluandvirði ríkisstofnana ef einkavæðingaráform ríkisstjórnarinnar næðu fram að ganga. Nú er sýnt að svo verður ekki og áætluð sala upp á 1.500 millj. kr. verður aðeins um 100 millj. kr. þannig að fjárveiting ætti samkvæmt því að vera 20 millj. í stað 300 millj. Að vísu var í fjáraukalögum samþykkt að veita 45 millj. kr. til Rannsóknasjóðs til að bæta upp nokkuð af því sem vilyrði hafði verið gefið fyrir, en langt er frá að staðið sé við það sem lofað var eins og hæstv. menntmrh. fullyrti þó í ræðu við 2. umr. um fjárlög. Það dugar því skammt þó ríkisstjórnin láti semja vísindastefnu og gefi yfirlýsingar henni tengdar, ef fjárveitingar fylgja ekki með þessum fögru fyrirheitum.
    Nefndin tók sérstaklega til umræðu málefni Lánasjóðs íslenskra námsmanna og lagði framkvæmdastjóri sjóðsins fram gögn um rekstur hans á yfirstandandi ári og þróun lánveitinga og námsmannafjölda á síðustu árum.
    Meiri hluti fjárln. leggur til að framlag til lánasjóðsins verði skorið niður um 70

millj. og veitt lán lækki úr 3.000 millj. kr. í 2.870 millj.
    Ný lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna voru sett 15. maí 1992 og vöruðu námsmenn þá sérstaklega við afleiðingum 6. gr. laga um eftirágreiðslur lána og einnig of háu endurgreiðsluhlutfalli sem er allt að 7% heildartekna.
    Það hefur komið á daginn að á árinu 1992 og 1993 hefur lánþegum fækkað mjög og voru 4.001 á síðasta ári og 4.101 á yfirstandandi ári. Skólaárið 1991/1992 voru lánþegar 5.725.
    Að mati námsmanna hafa afleiðingar nýrra úthlutunarreglna m.a. verið þær að fjölmargir námsmenn hafa hætt námi vegna þess að þeir treysta sér ekki til að taka lán banka og sparisjóða sem bjóðast með mjög háum vöxtum.
    Samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum stunda nú færri konur nám en fyrir breytingar á reglum lánasjóðsins og einstæðum mæðrum og námsmönnum með börn á framfæri hefur fækkað. Minni hluti fjárln. varar við því að jafnrétti og möguleikar allra til náms sé skert með breyttu námslánakerfi.
    Hjá Atvinnuleysistryggingasjóði er gert ráð fyrir 5--5,5% atvinnuleysi. Atvinnuleysi hefur vaxið hröðum skrefum í nóvember og það sem af er desember. Á afmörkuðum svæðum hefur það allt að tvöfaldast milli mánaða og allt bendir til að það haldi áfram að aukast. Heildarfjárveiting til Atvinnuleysistryggingasjóðs á árinu 1994 er áætluð 2.950 millj. kr. Heildarútgjöld sjóðsins eru áætluð 4 milljarðar, 4.000. millj. Sjóðnum er ætlað að afla tekna með sölu á skuldabréfum sjóðsins fyrir 200 millj. og framlag sveitarfélaga til atvinnuskapandi verkefna hefur verið ákveðið 600 millj. Á yfirstandandi ári lögðu sveitarfélögin fram 500 millj. og átti að vera þeim til atvinnuskapandi verkefna. Ekki er útlit fyrir að til þeirra verkefna verði veitt meira en 300 millj. kr. í ár og því mun þetta fé ekki nýtast allt til þess sem til var ætlast. Lögum um Atvinnuleysistryggingasjóð var breytt á síðasta þingi á þann veg að m.a. sjálfstæðir atvinnurekendur ættu rétt á bótum ef þeir hætta rekstri að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Í ár hafa borist 100--200 umsóknir vegna þessa en aðeins 25 uppfylla tilskilin skilyrði.
    Fulltrúar Ríkisútvarpsins komu á fund fjárln. og gerðu grein fyrir heldur slökum fjárhag Ríkisútvarpsins og kemur þar ýmislegt til. T.d. er reiknað með að sala auglýsingatíma dragist saman á næsta ári um 8%.
    Minni hlutinn telur að mikil nauðsyn sé að styrkja teknahlið Ríkisútvarpsins, en þess sér engan stað í tillögum meiri hluta fjárln. Ekki hefur verið tekin nein ákvörðun um að reisa nýtt langbylgjumastur þrátt fyrir það að mikil nauðsyn sé á slíkum búnaði til þess að sendingar útvarpsins heyrist um allt land og einnig á miðunum kringum landið. Hugmyndir eru á sveimi um að nýta Lóranstöðina á Rifi, en það er allt í lausu lofti enn sem komið er. Lóranstöðin gegnir lykilhlutverki í öryggismálum á hafinu og staðsetningu skipa og ekki sjáanlegt að aðrir leysi það hlutverk í hennar stað í allra næstu framtíð.
    Fjárveitingar til styrkingar rafdreifikerfa í sveitum hafa á undanförnum 14 árum lækkað úr 194,7 millj. kr. á verðlagi í október 1993 í um 15 millj. kr. á yfirstandandi ári. Að mati Rafmagnsveitna ríkisins er fjárþörfin á ári hverju um 200 millj. kr. og þarf á næstu fimm árum að verja um 900 millj. til þessa verkefnis að mati Rariks til þess að dreifikerfin geti talist rekstrarhæf.
    Ástandið í þessum málum er með þeim hætti að Rafmagnsveitur ríkisins hafa séð sig tilneyddar til að leggja verulegt fé úr rekstri til þessara verkefna eða um 75 millj. kr. árlega. Á næsta ári er áætlað að verja 85 millj. kr. til þessara verkefna af hálfu Rafmagnsveitnanna. Margoft hefur verið á það bent hve brýn þörf væri á auknu framlagi úr ríkissjóði til að fjármagna framkvæmdir við dreifikerfi í sveitum, en jafnan verið talað fyrir daufum eyrum. Rafmagnsveitum ríkisins er samt ætlað að greiða 50 millj. kr. arð til ríkisins á næsta ári.
    Póstur og sími standa árlega í miklum fjárfestingum vegna ljósleiðaralagningar um landið og einnig yfir Atlantshafið, en það er gert í samstarfi við erlend símafyrirtæki. Til þess verkefnis fara á næsta ári um 600 millj. kr. Þá er mikil uppbygging í stafræna símakerfinu og einnig í farsímakerfinu. Íslendingar hafa fjárfest meira í farsíma á skömmum

tíma en flestar aðrar þjóðir. Óhætt er að segja að Póstur og sími sé vel rekið opinbert fyrirtæki og afsannar algerlega kenninguna um að fyrirtæki þurfi að vera rekin í hlutafélagsformi eða einkarekin til þess að skila arði. Póstur og sími hefur í mörg ár greitt hundruð milljóna í ríkissjóð og svo er einnig áætlað á næsta ári eða 850 millj. kr.
    Þá fjallaði fjárln. um 6. gr. fjárlaga og minni hlutinn telur að það verði að fara með gát í að opna heimildarákvæði á 6. gr. til úthlutunar fjármuna og telur að ef of langt er gengið í þeim efnum sé sú regla brotin að Alþingi hafi fjárveitingavaldið. Tvö ný ákvæði í 6. gr. eru nú dæmi um þetta. Gert er ráð fyrir að fjármálaráðherra sé heimilt að fengnum tillögum samgönguráðherra að lækka heildargjöld stofnana samgönguráðuneytisins í A- og B-hluta fjárlaga 1994 um allt að 0,4% hjá hverri stofnun að hámarki og afla með því 40 millj. kr. til þess að leggja í sjóð til sérstaks markaðsátaks erlendis til þess að lengja ferðamannatíma á Íslandi, eins og það er orðað í tillögu meiri hluta fjárln. Flugleiðir leggi síðan 50 millj. á móti og frá Framleiðnisjóði landbúnaðarins komi 10 millj.
    Minni hlutinn telur málefnið þarft og leggst ekki efnislega á móti stofnun sjóðsins. Hins vegar er með öllu óeðlilegt að veita ráðherrum heimildir í 6. gr. fjárlaga til þess að skerða rekstrar- og stofnkostnaðarfjárveitingar eins ráðuneytis sem Alþingi hefur nýlega ákveðið. Rétt er að Alþingi ákveði hvernig þessara 40 millj. verði aflað og hvar niðurskurður á að lenda ef þeirra er aflað með þeim hætti.
    Sama er að segja um ákvæði að greiða í samráði við landbúnaðarráðherra sérstakar bætur til bænda sem verst hafa orðið úti vegna harðæris vorið og sumarið 1993. Minni hlutinn telur að leysa verði vandamál þessara bænda en ákveða eigi til þess fjármuni á fjárlögum og setja ákveðnar reglur með tilliti til þess en ekki leysa þau mál með opinni heimildargrein til handa landbúnaðarráðherra.
    Það færist stöðugt í vöxt að ráðherrar sem eru fulltrúar framkvæmdarvaldsins vilja seilast inn á svið löggjafarvaldsins í úthlutun fjármuna, en það teljum við í minni hluta fjárln. ekki góða stjórnsýslu.
    Að lokum, virðulegi forseti, vísa fulltrúar minni hlutans til álita 1. og 2. minni hluta efh.- og viðskn. um tekjuhlið fjárlaga fyrir árið 1994. Álit þessi eru fylgiskjöl með framhaldsnefndaráliti meiri hluta fjárln.
    Einstakir nefndarmenn áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja breytingartillögum sem fram kunna að koma.
    Ég vil svo að lokum ítreka þakkir okkar í minni hluta fjárln. til allra þeirra sem unnu fyrir og með nefndinni.