Skattamál

71. fundur
Mánudaginn 20. desember 1993, kl. 11:30:58 (3127)


[11:30]
     Halldór Ásgrímsson :
    Virðulegur forseti. Þær flóknu breytingar sem framkvæma á samkvæmt þessu á vörugjöldum eru fyrst og fremst vegna þess að hér er verið að lækka gjald af sykri þannig að sælgæti og gosdrykkir lækki nokkuð í verði til samræmis við aðrar matvörur. Þessar breytingar eru tengdar því tveggja þrepa kerfi sem stendur til að taka upp og þess vegna höfum við flutt brtt., sem við höfum nú dregið til baka, um að allur þessi kafli falli brott enda yrði hann þá óþarfur, en ég mun ekki greiða atkvæði við þessar breytingar að svo komnu máli.