[11:35]
Halldór Ásgrímsson :
Virðulegur forseti. Hér er um að ræða breytingar á lögum um Útflutningsráð Íslands með síðari breytingum. Sannleikurinn er sá að efh.- og viðskn. hafði hreinlega ekki ráðrúm né tíma til að fara vel yfir þessi ákvæði. Það hefur verið mikið að starfa á undanförnum vikum og þess vegna hefur ekki gefist tími til að ræða við aðila þessa máls um þær breytingar sem hér koma fram. Ég er ekki með því að segja að hagsmunaaðilar séu á móti þessari breytingu. Ég hygg að þeir séu flestir með henni, en ég tel að það hefði þurft lengri tíma til þess að fara yfir þetta mál og mun því ekki greiða atkvæði.