[13:02]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það er hárrétt að þessi liður hlýtur að vera óviss. Við gerum þó ráð fyrir því að hann sé vísari en oftast áður, hann hefur verið lækkaður verulega og við sjáum að það geta átt sér stað sölur ef Alþingi samþykkir og meiri hlutinn á Alþingi hefur leyft framlagningu og lýst yfir stuðningi við frv. eins og t.d. lyfjaverslunarfrumvarpið. Hitt er einnig rétt hjá hv. þm. að það kann að vera að eftir að SR-mjöl er orðið að hlutafélagi að söluandvirðið fari beint á ímyndaðan höfuðstól vegna eignabreytinga en frá því hefur ekki endanlega verið gengið. Það mál er til skoðunar og ég get ekki fullyrt það hér en það
má vera og sé svo þá er auðvitað ekki hægt að færa söluandvirði af SR-mjöli inn á tekjur á næsta ári heldur fer það beint yfir á efnahagsreikninginn ef svo má að orði komast.