Framleiðsla og sala á búvörum

71. fundur
Mánudaginn 20. desember 1993, kl. 16:17:09 (3171)


[16:17]
     Ólafur Ragnar Grímsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er ágætis ábending hjá hv. þm. Svavari Gestssyni að það sé bara við hæfi að segja hér gleðileg jól við hæstv. utanrrh. vegna þess að það hefur aldrei verið neinn ágreiningur milli okkar í stjórnarandstöðunni og þeirra í ríkisstjórnarliðinu sem vildu að forræðið væri hjá landbrh., aldrei nokkur ágreiningur, þannig að tíðindin um gestalistann í þessu jólaboði eru ekki að við séum í því jólaboði, þingmenn Alþb. Tíðindin um gestalistann eru að hæstv. utanrrh. skuli vera þar og Alþfl.